Fara í efni

Kaupum Hjartanæluna

Styrkjum gott málefni.
Kaupum Hjartanæluna

Árlega látast um 2200 Íslendingar,* þar af um 800 eða 36% úr hjarta- og æðasjúkdómum**.

Hjarta- og æðasjúkdómar eru langstærsta dánarorsök Íslendinga og því er einkar átakanlegt að rekja megi 82% dauðsfalla af þeirra völdum til utanaðkomandi áhættuþátta, sem í flestum tilfellum tengjast lífsstíl.**

Auk hjarta- og æðasjúkdóma dregur bættur lífsstíll úr áhættu margra fleiri sjúkdóma, og því ættu forvarnir og heilsuefling að vera forgangsverkefni stjórnvalda.

* Hagstofa Íslands (2017), Dánir og dánartíðni 1841–2015.
** Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (2016), Global Burden of Disease 2015.

„Hugaðu að hjartanu, þú hefur aðeins eitt“

Með kaupum á Hjartanælunni leggur þú öflugum samtökum lið í fræðslu- og forvarnarverkefni samtakanna. Nælan kostar 2.000,- kr. Hér er hægt að panta næluna.