Langhlauparar ársins 2017
Arnar Pétursson og Elísabet Margeirsdóttir eru langhlauparar ársins 2017 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í níunda skipti í dag, sunnudaginn 21. janúar, en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Þorbergur Ingi Jónsson hafnaði í öðru sæti í karlaflokki og Kári Steinn Karlsson í þriðja sæti. Í kvennaflokki hafnaði Elín Edda Sigurðardóttir í öðru sæti og Guðlaug Edda Hannesdóttir í þriðja sæti.
40 tilnefningar bárust að þessu sinni frá lesendum hlaup.is. Íslenska hlaupasamfélagið kaus langhlaupara ársins í opinni netkosningu á milli sex hlaupara í karlaflokki og kvennaflokki.
Vestmannaeyjahlaupið götuhlaup ársins og Súlur Vertical utanvegahlaup ársins
Val á hlaupum ársins 2017 var einnig kunngjört á verðlaunaafhendingunni í dag. Vestmannaeyjahlaupið hlaut titilinn götuhlaup ársins 2017 og Súlur Vertical er utanvegahlaup ársins 2017. Rétt eins og með valið á langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með einkunnagjöfum.
Nánari upplýsingar má frá í frétt á hlaup.is.
Upplýsingar um afrek þeirra sem tilnefndir voru til langhlaupara ársins.
Nánari upplýsingar gefur Torfi H. Leifsson S.8541600 torfi@hlaup.is.