Fara í efni

Leitin að besta heilsunamminu er hafin

Lifandi Markaður og Kaja Organic leita nú að besta heilsunamminu. Það er um að gera að taka þátt og leggja fram uppskriftir þar sem verðlaunin eru ekki af verri endanum og það sem meira er, vinningsuppskriftin fer í framleiðslu hjá Lifandi markaði og verður seld þar um jólin.
Leitað að besta heilsunamminu.

“Ég er auðvitað voðalega spennt yfir þessu öllu saman því heppna ég fæ að smakka á öllu saman,” segir matgæðingurinn Oddrún Helga Símonardóttir á bloggi sínum heilsumamman.com, en hún verður dómari ásamt þeim Kareni framkvæmdastjóra Kaja Organic og Guðmundi matreiðslumeistara á Lifandi Markaði.

Vinningshafinn fær gjafakörfu að verðmæti 15.000 krónur frá Kaja Organic ásamt matarkorti að verðmæti 40.000 í Lifandi Markaði. Auk þess sem vinningsuppskriftin kemst á matseðil Lifandi markaðar.

Nú er bara að bretta upp ermarnar og útbúa ómótstæðilegt hollustunammi. Uppskrift og mynd þurfa að berast á lifandimarkadur@lifandimarkadur.is og koma þarf með sýnishorn, nokkur stykki, í Lifandi Markað fyrir 25.nóvember.

Vinningshafinn verður kynntur á Konukvöldi Lifandi Markaðar sem verður haldið 26.nóvember á milli klukkan 17.00-20.00. Þá munu gestir og gangandi geta bragðað á vinningsnamminu.