Fara í efni

Lyftingar hægja á vöðvarýrnun þegar við eldumst

Lyftingar eru heppilegar fyrir þá sem vilja viðhalda vöðvamassa og tónuðum vöðvum og góðri beinheilsu.
Lyftingar hægja á vöðvarýrnun þegar við eldumst

Lyftingar eru heppilegar fyrir þá sem vilja viðhalda vöðvamassa og tónuðum vöðvum og góðri beinheilsu.

Það hefur löngum verið talið að það þurfi að lyfta þungum lóðum til að byggja upp vöðva. En samkvæmt nýrri rannsókn sem greint er frá á vefnum aarp.org er það ekki rétt.

Það skilar jafngóðum árangri að lyfta léttum lóðum og þungum. Það eru hins vegar endurtekningarnar sem skipta máli. Það þarf að lyfta þangað til fólk er farið að þreytast -skiptir þá engu hvort fólk er ungt eða gamalt eða hefur stundað lyftingar áður.

Rannsóknarteymi við háskólann í Hamilton í Kanada hefur gert samanburðarrannsókn á 50 einstaklingum körlum og konum sem skipt var í tvo hópa.  Fólkið mætti í líkamsræktarstöð fjórum sinnum í viku í þrjá mánuði til að lyfta.

Annar hópurinn voru byrjendur sem lyftu léttum lóðum og tóku 20 til 25 endurtekningar í hverri lotu, hinn hópurinn hafði æft lyftingar og lyfti þungum lóðum átta til tólf sinnum í hverri lotu. Aukning á vöðvamassa var . . . LESA MEIRA