Fara í efni

Matar – Æði aukanámskeið

Er maturinn við stjórnvölinn? ATH! Námskeiðin 13. og 15. apríl eru uppseld en öðru námskeiði hefur verið bætt við mánudaginn 4. maí
Lausnin.is með aukanámskeið í maí.
Lausnin.is með aukanámskeið í maí.

Er maturinn við stjórnvölinn?  Matar – Æði er námskeið sem varpar ljósi á nokkur lykilatriði þegar kemur að því að takast á við mataræðið og þyngdarstjórnun í eitt skipti fyrir öll. Í allri umræðu um þyngdarstjórnun og stjórnleysi í mataræði er lögð mikil áhersla á aðferðir sem virðast ekki gagnast mörgum og hafa litlum árangri skilað þegar á heildina er litið. Á þessu námskeiði er lögð áhersla á nýja nálgun sem leið til þess að þú getir lifað ánægjulegu lífi, sátt/ur við sjálfan þig og mataræðið.

Á námskeiðinu verða 4 lyklar afhjúpaðir sem hafa mikil áhrif á árangur með þyngdarstjórnun og mataræði almennt. Samhliða því verður eftirfarandi spurningum velt upp ásamt ýmsum öðrum atriðum í tengslum við mataræði, hreyfingu og aukakílóin.

  • Er eðlilegt að matur stjórni mér?
  • Hvað veldur því að ég get ekki staðið við mínar ákvarðanir varðandi mat eða sætindi?
  • Af hverju borða ég meira en til stóð, þótt ég sjái oftast eftir því og brjóti mig niður fyrir það?
  • Er það skortur á aga sem veldur því að ég næ ekki að léttast eða halda mér í kjörþyngd, eða eru aðrir þættir að hafa áhrif?
  • Af hverju hefur ástandið versnað svona mikið á síðustu árum?
  • Er það samasemmerki að léttast og að lífið sé hundleiðinlegt og fullt af boðum og bönnum?
  • Þarf maður að telja hitaeiningar og vera hungraður alla daga til að viðhalda kjörþyngd?
  • Verður maður að æfa stöðugt til að halda sér í kjörþyngd?
  • Er einhver einföld leið til að léttast og viðhalda réttri þyngd?

Matar – Æði er hnitmiðað og hressandi námskeið, stútfullt af góðum fréttum fyrir þig. Fyrirlesari er Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi, sem hefur í fjölda ára starfað á heilsutengdu sviði í formi þjálfunar og ráðgjafar í tengslum við mataræði, hreyfingu og fíknitengd vandamál. Valdimar er meðal annars með BA menntun í félagsráðgjöf og einkaþjálfunargráðu.

Umsagnir þátttakenda:

”Mér fannst þetta mjög áhugavert.. Hef hugsað mikið um þetta í dag og reynt að borða samkvæmt þessu og merkilegt nokk þá er ég ekkert svöng en hef borðað alveg nóg!! Mjög merkilegt.. það sagði eitthvert „klikk“ í hausnum á mér!! Betra seint en aldrei!!” Þ.H.

„Námsskeiðið hjá Valdimar staðfesti í mínu tilfelli að mörgum staðhæfingum sem haldið hefur verið fram við mig frá barnæsku eru beinlínis rangar. Ég hef val í dag sem ég hef haft síðastliðin 10 ár, það er hvort ég ætli að sitja á rassgatinu verandi bráðvelgefin einstaklingur og hugsa í önnur 10 ár til viðbótar“ G.B.

ATH! Námskeið 13. og 15. apríl eru uppseld en öðru námskeiði hefur verið bætt við mánudaginn 4. maí.

Námskeiðið er um 1,5 klst klukkan 20:00 – 21:30

 Verð 4.900 – takmarkað sætaframboð. Skráning fyrir nýtt námskeið 4. maí „HÉR“

Tengt efni: