Fara í efni

Pennaveski að gjöf til tóbakslausra bekkja

Allir nemendur í sjöunda, áttunda og níunda bekk grunnskóla sem taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur hafa fengið sent pennaveski að gjöf frá Embætti landlæknis.
Pennaveski að gjöf til tóbakslausra bekkja

Allir nemendur í sjöunda, áttunda og níunda bekk grunnskóla sem taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur hafa fengið sent pennaveski að gjöf frá Embætti landlæknis.

Í vetur taka 240 bekkir víðsvegar um landið þátt í verkefninu þannig að gjöfin er send til nær 5000 grunnskólanemenda. Gjöfin á að hafa borist öllum og kemur vonandi að góðum notum.

Nýlega fór einnig fram annar útdráttur vinninga  en dregnir hafa verið út þrír bekkir sem fá nú sendan aukavinning. Að þessu sinni fá nemendur vinningsbekkjanna og kennarar þeirra húfur frá 66° Norður.

Eftirtaldir bekkir duttu í lukkupottinn:

  • 7. IG í Seljaskóla
  • 7. bekkur í Kerhólsskóla
  • 8. HBÁ Akurskóla

Þátttakendur eru minntir á lokaskil á verkefnum, en þeim á að skila í síðasta lagi mánudaginn 27. apríl næstkomandi.

Alls tíu bekkir sem senda inn lokaverkefni vinna til verðlauna.

Bekkir sem velja að senda inn lokaverkefni geta unnið fé til að ráðstafa eins og bekkurinn sjálfur kýs að gera. Upphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum.

Eingöngu er tekið við lokaverkefnum á tölvutæku formi. Æskilegt er að myndbrot séu ekki lengri en 10 mínútur.

Verkefnin geta verið með ýmsu móti, t.d. veggspjöld, auglýsingar, stuttmyndir eða fræðsluefni um tóbaksvarnir.

Það skal áréttað að það er ekki skilyrði fyrir þátttöku í verkefninuTóbakslaus bekkur að skila inn lokaverkefni. Eftir miðjan maí verða úrslitin kynnt.

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði keppninnar: www.landlaeknir.is/tobakslausbekkur

Hægt er að skoða lokaverkefni verðlaunahafa síðasta skólaárs í frétt um úrslitin 16. maí 2014

Viðar Jensson
verkefnisstjóri

Heimild: landlaeknir.is