Fara í efni

Það jafnast á við pyntingar að byrja að vinna fyrir níu

Rannsóknir vísindafólks við Oxford-háskóla benda eindregið til þess að það sé beinlínis mannfjandsamlegt að láta fólk mæta til vinnu fyrir klukkan tíu á morgnana.
Það er betra að taka daginn ekki of snemma.
Það er betra að taka daginn ekki of snemma.

Rannsóknir vísindafólks við Oxford-háskóla benda eindregið til þess að það sé beinlínis mannfjandsamlegt að láta fólk mæta til vinnu fyrir klukkan tíu á morgnana. Dr. Paul Kelley og hans fólk hefur með svefnrannsóknum komist að þeirri niðurstöðu að það stríði gegn náttúrulegum takti mannslíkamans að vakna fyrir klukkan níu á hverjum morgni. Í raun sé þetta slíkt líkamlegt og andlegt ofbeldi að það jafnast á við pyntingar.

Kelley bendir á að orkustöðvar líkamans, heilabylgjur og hormónaframleiðsla tengist beint við birtustig en ekki verksmiðjustimpilklukkuna sem hefur tikkað frá níu til fimm síðan átjánhundruð og eitthvað. Verksmiðjueigendur innleiddu þennan átta tíma vinnudag fyrir margt löngu enda talið að þannig mætti auka framleiðslu. Þetta er að mati Kelleys og hans fólks alveg úr takti við lífstíl okkar í dag þar sem vinna margra felur nú í sér mikla hugsun frekar en handavinnu eingöngu.

"Við búum í svefnvana samfélagi," segir Kelley sem sannreyndi kenningu sína þegar kennsla í breskum skólum var færð aftur um eina og hálfa klukkustund og látin hefjast klukkan tíu frekar en hálf níu. Eftir breytinguna hækkuðu einkunnir að meðaltali um 19%.

Fyrirtæki sem gera starfsfólki sínu að hefja vinnu fyrir klukkan tíu leggja mikið andlega og líkamlega á starfsfólk sitt sem skilar sér í fleiri veikindadögum og lélegri afköstum. Þá er þessi gamli ósiður fyrst og fremst talinn valda því að Bandaríkjamenn eyða 40 milljörðum dollara í kaffi árlega. Eða eins og Kelley orðar það: "Þetta er alþjóðlegt vandamál. Allir þjást án þess að þurfa þess."