Fara í efni

Þegar foreldrar okkar eldast

Margir sem komnir eru yfir miðjan aldur eiga foreldra sem eru farnir að þurfa á aðstoð að halda. Þessi grein sem fjallar einmitt um það efni, birtist bandarísku vefsíðunni AARP. Hún er eftir Barry J. Jacobs sálfræðing og fjölskylduráðgjafa. Þótt hún taki mið af aðstæðum í Bandaríkjunum má ýmsilegt af henni læra þannig að hún birtist hér í íslenskri þýðingu.
Þegar foreldrar okkar eldast

Margir sem komnir eru yfir miðjan aldur eiga foreldra sem eru farnir að þurfa á aðstoð að halda. Þessi grein sem fjallar einmitt um það efni, birtist bandarísku vefsíðunni AARP.

Hún er eftir Barry J. Jacobs sálfræðing og fjölskylduráðgjafa. Þótt hún taki mið af aðstæðum í Bandaríkjunum má ýmsilegt af henni læra þannig að hún birtist hér í íslenskri þýðingu.

Millý sem er orðin áttærð gerði alltaf ráð fyrir því að dóttir hennar Becky myndi sjá um hana þegar hún yrði gömul. En það tekur Becky 45 mínútur að keyra til hennar, auk þess sem hún er í fullu starfi og þarf að skutla börnum sínum á táningsaldri í íþróttir og aðra aukatíma. Þó tveir synir Millýar og tengdadætur búi rétt hjá henni og líti oft inn, vill hún helst hafa dóttur sína hjá sér. Becky kemur oft í heimsókn og sér að mamma hennar er sáróánægð með þetta. Hún finnur bæði til sektarkenndar og pirrings.

Á hún að flytja inn hjá mömmu?

„Hvers vegna getur mamma ekki bara sætt sig við það plan sem við höfum sett upp. Það er lang besta leiðin?“, spyr Becky bræður sína í öngum sínum. Þeir eiga engin svör önnur en þau að hún hafi alltaf verið í mestu uppáhaldi hjá henni. Þetta svar eykur enn á sektartilfinningu Becky, eins og það væri réttast að hún hætti bara að vinna, og flytti ásamt fjölskyldu sinni heim til mömmu í litlu íbúðina hennar, til að sjá um hana.

Umönnun oft í höndum dætranna

Þessi systkini eru ágætis dæmi um hversu flókið það getur verið að sjá um aldraða foreldra. Það er sjaldnast mikið jafnræði milli systkina þegar að þessu kemur. Í flestum fjölskyldum er það eitt systkinanna, yfirleitt dóttirin, sem mest mæðir á þegar kemur að umönnun foreldranna. Hvert barnanna tekur mesta ábyrgð í þessu efni, hefur mjög lítið að gera með það hvað er heppilegast. Þættir sem þarna spila inní, eru óskir foreldranna og samband þeirra við syni sína og dætur.

Það sem móðirin vill er mikilvægt

Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsóknum sem gerðar hafa verið í tveimur bandarískum háskólum. Niðurstöður þeirra sýna að það sem hefur áhrif á hvert systkinanna annast aldraðra móður, er búseta þeirra, en einnig kyn og tilfinningalegt samband við hana. Það sem móðirin vill, hefur mikil áhrif á hvernig flestar fjölskyldur skipta með sér verkum. Þegar ekki er unnt að koma til móts við óskir móðrinnar af ýmsum ástæðum, er hætt við að hún verði óánægð og það skapi vandamál í fjölskyldunni. Hvernig er hægt að koma í veg fyrir árekstra þegar ekki er hægt að uppfylla óskir foreldranna? Það eru engar töfralausnir á því, en hér eru nokkrar hugmyndir.

Ræðið opinskátt um hvernig hlutirnir verða

Fjölskylda er stundum skilgreind sem sá hópur fólks sem við búumst við að sýni okkur ástúð, tryggð og hjálpi okkur þegar á þarf að halda. En nánari útlistanir á því hver gerir hvað fyrir hvern og hvenær er nokkuð sem menn ræða kannski ekki um. Menn reikna bara með að fjölskyldan komi þeim til hjálpar. Þess vegna getur komið upp misskilningur og gremja í samskiptum fólks varðandi þetta. Þegar kemur að umönnun aldraðra foreldra, getur dætrum fundist að það sé verið að misnota góðvild þeirra, þegar móðirin er aldrei ánægð með það sem þær gera, og synirnir verða móðgaðir þegar systur þeirra kvarta stöðugt yfir því að þær þurfi að sjá um allt.

 

Til að lesa þessa grein frá lifdununa.is smelltu þá R.