Fara í efni

Þjálfaði frægar Hollywood-stjörnur og gefur út bækur í Bandaríkjunum

Þeir eru ófáir sem þekkja ekki eitthvað til Guðna Gunnarssonar. Hann rekur sitt eigið fyrirtæki og kennir námskeið byggð á þeirri hugmyndafræði sem hann hefur þróað við Rope Yoga Setrið í Garðabæ ásamt því að bjóða upp á fyrirlestra og lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa.
Þjálfaði frægar Hollywood-stjörnur og gefur út bækur í Bandaríkjunum

Þeir eru ófáir sem þekkja ekki eitthvað til Guðna Gunnarssonar.

Hann rekur sitt eigið fyrirtæki og kennir námskeið byggð á þeirri hugmyndafræði sem hann hefur þróað við Rope Yoga Setrið í Garðabæ ásamt því að bjóða upp á fyrirlestra og lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa.

Gefur út bækur í Bandaríkjunum

Guðni starfar einnig við ráðgjöf og fyrirlestra á netinu í tengslum við nýútkomnar bækur sínar í Bandaríkjunum, Presence Is Power og Presence Is Power The Seven Step Workbook, ásamt því að undirbúa útgáfu þeirra í fleiri löndum, eins og til dæmis Japan, á komandi hausti.

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Guðna Gunnarsson

Fullt nafn:  Guðni Gunnarsson

Aldur:  61 árs ungur

Starf:  Ráðgjafi

Maki:  Guðlaug Yndisleg Pétursdóttir

Börn: Þór Guðnason f. 1974 og Gunnar Pétur Guðnason f. 2004

Hver var síðasti facebook status þinn?

EN HVAÐ ER AÐ ÞVÍ HVERNIG VIÐ ÖNDUM?

Við öndum yfirleitt hratt og grunnt. Við fáum lítið súrefni og skilum litlu magni af koltvísýringi frá okkur. Útkoman er því súrefnissveltur líkami og uppsöfnun eiturefna. Hver einasta fruma í líkamanum þarfnast súrefnis og lífskraftur þinn er afleiðing heilsu allra fruma í líkama þínum. Grunn öndun þjálfar lungun ekki eins mikið og djúp öndun; lungun missa því smátt og smátt virkni sína sem orsakar frekari minnkun á lífskrafti líkamans.

Dýr sem anda hægt og jafnt lifa lengst; fíllinn er gott dæmi um þetta. Við þurfum að anda hægar og dýpra ef við viljum viðhalda velsæld og jöfnu orkuflæði. Hröð og grunn öndun orsakar súrefnissvelti sem minnkar lífskraftinn og ýtir undir hrörnun, veikt ónæmiskerfi og fjölda annarra þátta.

Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?

Valið er á milli Buzz Aldrin geimfara og Kim Basinger, ég varði viku á skíðum með Buzz í Dear Valley Utah þegar ég bjó í Californiu og ég þjálfaði Kim fyrir kvikmyndina the 8 Mile með Eminem. . . LESA MEIRA