Fara í efni

Til hamingju Heilsutorg - 2ja ára

Heilsutorg.is verið í loftinu í 2 ár!
Til hamingju Heilsutorg - 2ja ára

Heilsutorg.is verið í loftinu í 2 ár! 

Tíminn hefur flogið og ykkur finnst við sjálfsagt alltaf hafa verið til staðar, flytjandi ykkur fréttir af heilsutengdum málum, kryddað með uppskriftum af gómsætum og fallegum réttum, flest allir meira að segja mjög hollir.

Margir heimsækja Heilsutorgið á hverjum degi og sumir oft á dag, þetta er sá hvati sem við höfum til að vera stöðugt „á tánum“ með nýtt og ferskt efni, af ýmsum toga, tengjandi ólíka heilsutengda vinkla saman á einum stað.

Að jafnaði eru heimsóknirnar á bilinu 5000-8000 á dag en besti dagurinn er 16.100 heimsóknir sem var hreint magnaður dagur og sýnir augljóslega áhuga fólks á súkkulaði. En þann dag var fjallað um súkkulaði.

Síðunni fylgja um 20.000 aðilar á Facebook.

Heilsutorg er nútímalegur og lifandi vefur sem uppfærist daglega alla daga vikunnar allt árið um kring. Okkar markmið er að fjalla um allt sem tengst getur heilsu á Íslandi og birtum við aðeins sannreyndar upplýsingar á fordómalausan máta. 

Við höldum ótrauð áfram.

Kær kveðja,

Teymi Heilsutorgs