Fara í efni

Óskað eftir tilnefningum til Fjöreggs MNÍ frestur til 9. september

Þekkir þú til fyrirtækis, sprotafyrirtækis eða stofnunar sem sýnt hefur frumkvæði og skarað fram úr á matvæla- og/eða næringarsviði?
Tilnefningar til fjöreggsins
Tilnefningar til fjöreggsins

Þekkir þú til fyrirtækis, sprotafyrirtækis eða stofnunar sem sýnt hefur frumkvæði og skarað fram úr á matvæla- og/eða næringarsviði?

Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðafélags Ísland (MNÍ) verður haldinn í 22. sinn í október næst komandi. Á Matvæladeginum verða veitt árleg verðlaun, „FJÖREGG MNÍ,“ fyrir lofsvert framtak á matvæla og/eða næringarsviði. Fjöreggið, sem er íslenskt glerlistaverk, hannað og framleitt hjá Gleri í Bergvík, hefur frá upphafi verið veitt með stuðningi frá Samtökum iðnaðarins. Upplýsingar um „Fjöregg“ fyrri ára má finna á heimasíðunni okkar www.mni.is 

Félagsmenn og aðrir eru hvattir til að benda á vörur eða gott framtak sprotafyrirtækja, stofnana eða fyrirtækja sem sýnt hafa frumkvæði og skarað fram úr á matvæla- og/eða næringarsviði og eru þess verðug að keppa til verðlaunanna. Mikilvægt er að setja fram rökstuðning með ábendingunni.

Tilnefningar á að senda á netfang Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands, mni@mni.is fyrir 9. september næstkomandi.