Fara í efni

Vín og hjartaheilsa

Oft er sagt að hóflega dukkið vín gleðji mannsins hjarta og þegar helgin nálgast verður vín mörgum hugleikið og velja þarf vín með grillinu eða helgarsteikinni. Ég tók saman nokkur atriði sem ég tíndi úr ýmsum áttum og setti saman þar sem farið er yfir eitt og annað sem máli skiptir varðandi vín og hjartaheilsu.
Vín og hjartaheilsa
Vín og hjartaheilsa

Oft er sagt að hóflega dukkið vín gleðji mannsins hjarta og þegar helgin nálgast verður vín mörgum hugleikið og velja þarf vín með grillinu eða helgarsteikinni. Ég tók saman nokkur atriði sem ég tíndi úr ýmsum áttum og setti saman þar sem farið er yfir eitt og annað sem máli skiptir varðandi vín og hjartaheilsu.

Rannsóknir hafa sýnt að fullorðnir sem drekka í litlu magni eða í hófi, hvítvín og rauðvín, bjór, og sterk vín eru í minni hættu að þróa með sér hjarta og æðasjúkdóma en þeir sem drekka yfir höfuð ekki eða drekka mikið.

Lítil eða hófsöm notkun á áfengi þýðir að viðkomandi drekkur 2-7 drykki á viku. Meiri drykkja getur valdið skaða á hjarta og lifur og hjartasjúkdómar eru leiðandi orsök dauða hjá fólki sem misnotar áfengi. 

Hér er að nokkrar ástæður þess að hófsöm neysla áfengis getur hjálpað hjartanu:

  • Hækkar góða kólesterólið HDL
     
  • Minnkar líkur á blóðsegamyndun (blóðtappi)
     
  • Dregur úr bólgum
     
  • Eykur virkni andoxunarefna (rauðvín inniheldur andoxunarefni sem kallað er flavonoids)

Það er þó fín lína á milli heilbrigðrar neyslu og áhættusamrar neyslu og sem dæmi má nefna að hjartasláttartruflanir eru algengur fylgifiskur of mikillar áfengisneyslu. Það er ekki mælt með því að þú byrjir að neyta áfengis eða neyta þess oftar, bara til að minnka áhættuna á hjartasjúkdómum.

Amerísku hjartasamtökin og margir aðrir sérfræðingar segja að það séu margar árangursíkari leiðir til að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma og þar á meðal:

  • Hafa stjórn á blóðþrýstingi og kólesteróli
     
  • Stunda líkamsæfingar, ganga og borða heilbrigt mataræði sem passar þér
     
  • Reykja ekki
     
  • Halda þig í kjörþyngd

Það er miklu fleiri vísindalegar sannanir sem styðja þessar reyndu og sönnu aðferðir frekar en að beina því til fólks að drekka áfengi í hóflegu magni.

Allir sem hafa hjartasjúkdóm eða hjartabilun nú þegar ættu að tala við lækninn áður en þeir ákveða að drekka áfengi. Áfengi getur haft áhrif  á hjartabilun og önnur hjartavandamál til hins verra.

Niðurstaða:

  • Ef þú drekkur 2- 7 drykki á viku þarf þú engar áhyggjur að hafa af þessu, njóttu þess
     
  • Ef þú drekkur of mikið eða hefur ekki stjórn á áfengi skaltu leita þér hjálpar, það gæti bjargað mannslífi.
     

Ef þú drekkur ekki skaltu ekki byrja að drekka bara til að vernda hjartað, heilbrigða lífernið er betra.

Heimild: hjartalif.is