Fara í efni

Að lifa í núinu

Baujan miðar að því að hafa stjórn á tilfinningalegri, andlegri líðan sinni.
Að lifa í núinu

Baujan miðar að því að hafa stjórn á tilfinningalegri, andlegri líðan sinni.

Að geta sett sig í spor annarra, gefið meira af sér og notið líðandi stundar. Með Baujunni öðlumst við innra orkujafnvægi sem gerir okkur fært að lifa í núinu.

Til að lifa í núinu þarf innra jafnvægi, góð tengsl við slökun þaðan sem lífsorkan kemur.

Náttúran, allt líf leitar eftir orkujafnvægi til að viðhalda heilbrigði og styrk.

Maðurinn er hluti af náttúrunni og við þurfum á jafnvægi og styrk okkar að halda.

Baujan leiðréttir og styrkir eðlilegt orkuflæði líkamans og leitar jafnvægis. Hún hjálpar okkur við að sækja orkuna frá slökun, orkubrunninum sem endurnýjar sig stöðugt og er óþrjótandi.

Með Baujunni öðlumst við innra jafnvægi. Við leiðréttum orkubúskap líkamans.

Snúið er frá meðvirkni, skyndiorku og orkubrunnurinn er virkjaður. Þá er auðveldara að takast á við erfiðar aðstæður og álag.

Þegar Baujan er orðin okkur töm er eins og við séum í stöðugu yoga.

Þá er auðveldara að lifa í núinu.

Við þörfnumst þess að lifa í núinu, til að vera fær um taka á móti áföllum og andstreymi af fullum styrk!

Við þörfnumst þess að lifa í núinu, til að vera hæf til að elska og njóta lífsins á líðandi stundu.

Þess vegna þarf að vinna úr áföllum svo við tengjumst aftur sjálfum okkur þ.e.s. slökuninni fljótt og vel. Svo við verðum aftur fær um að lifa í núinu en séum ekki að stjórnast af streitu.

Við upplifum veruleika okkar út frá þeirri grunntilfinningu sem stjórnar okkur.

Ef reiðin stjórnar okkur til dæmis erum við stöðugt í vörn, ef höfnun stjórnar okkur finnst okkur við aldrei nógu góð…og svo framvegis.

Með Baujunni lærum við að upplifa veruleikann út frá slökun, hlutleysi og upplifum því veruleikann á sem eðlilegastan og raunsannastan hátt þ.e út frá kærleik.

Til að lesa þessa grein til enda, smelltu þá HÉR

Grein af vef baujan.is 

Baujan er einnig með Facebook síðu.