Fara í efni

Heilsufræðsla

Margir þættir hafa áhrif á heilsufar okkar eins og þekking, skilningur, gildi og vilji til að framfylgja því sem er hollt og gott.
Heilsufræðsla

Margir þættir hafa áhrif á heilsufar okkar eins og þekking, skilningur, gildi og vilji til að framfylgja því sem er hollt og gott.

Þessi heilsufræðsla er heildræn og fjallar um líkamlega-, andlega-, og félagslega- heilsu, svo og áhrifa persónulegs umhverfis og samfélags á heilsufar. 

Allir þessir þættir hafa mis mikil áhrif á okkar daglega líf og því þarf að huga að þeim öllum.  Það hvernig við hagnýtum okkur fræðsluna byggist á persónulegum viðhorfum, lífsvenjum, gildi, atvinnu, tekjum, frístundum og fjölskyldunni. Til að upplifa vellíðan þurfa þessir þættir að vera í góðu jafnvægi.  Þegar röskun verður á daglegu jafnvægi, til dæmis þegar líkamleg líðan er í góðu lagi en andleg líðan mjög döpur, þá hefur andleg vanlíðan neikvæð áhrif á líkamlega líðan svo líkamleg einkenni koma fljótlega í ljós.

Heilsufar fólks mótast ekki einungis af persónulegum þáttum heldur einnig af ytri þáttum eins og samfélagslegum skilyrðum (menningu, efnahag og skipulagi opinberrar þjónustu heilbrigðis-, mennta- og velferðarmála) auk regluvalds og lagasetninga. Það geta verið eflandi eða hindrandi námsþættir tengdir einstaklingnum sjálfum eins og gildi lífsviðhorf, lífshættir, þekking, menntun, atvinna, tekjur, frístundir og fjölskyldan.

Á fræðslunámskeiðunum eru margar aðferðir notaðar til að hjálpa þér til að skilja hvað getur haft áhrif til eflingar á eigin heilsu. Til að mæta þörfum sem flestra er ekki einungis um almenna heilsufræðslu að ræða (andlega-, líkamlega, félagslega, umhverfislega,  samfélagslega og geðheilsu), heldur líka fræðslu miðað við kyn, aldurshóp og áhættugreiningu.

Grein af vef heil.is