Fara í efni

HUGSAÐU ÞIG Í FORM - 10. APRÍL

FRÁBÆRT NÁMSKEIÐ FYRIR KONUR/STELPUR Á ÖLLUM ALDRI.
Hugsaðu þig í form
Hugsaðu þig í form

FRÁBÆRT NÁMSKEIÐ FYRIR KONUR/STELPUR Á ÖLLUM ALDRI.

SAMA HVERT MARKMIÐIÐ ER.

  • Hvernig getur hugurinn haft áhrif á líkamsbreytingar.
  • Hvernig getur hugurinn aukið orku og andlegan styrk.

Tímarnir fara fram í upphituðum sal þar sem teknar eru góðar æfingar fyrir allan líkamann. Farið er í góðar teygjur í lok hvers tíma og hugleiðsla tekinn. Í hugleiðslunni er mikið unnið með að styrkja eigin getu og kraft.

4 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 10. APRÍL

Kennt: þri + fim kl: 16.30 í sal 5 (heiti salurinn)
& opinn tími fös kl: 16.30 í sal 9
Verð: 12.900 kr.

  • ótakmarkaður aðgangur að allri aðstöðu og opnum hóptímum er innifalið í námskeiðagjaldi.

UMSAGNIR FRÁ ÞÁTTTAKENDUM VOR 2013

"Námskeiðið var frábært, hefði mátt vera 3 sinnum í viku. Kem svo sannarlega aftur."

"Ég myndi ekki vilja breyta neinu á námskeiðinu. Viðurkenni að ég var svolítið efins fyrst þegar systir mín stakk upp á að við drifum okkur en sá efi hvarf strax eftir fyrsta tímann. Þetta voru mjög skemmtilegir og fjölbreyttir timar með hæfilega einföldum sporum. Hlakka til að koma aftur í haust!"

"Kærar þakkir fyrir frábært námskeið Bára. Þú ert algjör vítamínsprauta. Þó svo að ég hafi ekki alltaf haft tök á að mæta þá fékk ég mikið út úr námskeiðinu. Ég hef verið dugleg að hugleiða og mun gera það áfram."

"Ég er mjög ánægð með námskeiðið hjá og hefði svo gjarnan viljað byrja strax aftur en svona er það þegar sumarið kemur. Mér finnst frábært hvað tímarnir eru fjölbreyttir og þó að hugleiðslan sé stutt að þá hefur hún mjög mikið að segja."

NÁMSKEIÐALÝSING:

Skemmtilegir tímar þar sem æfingarnar eru mjög fjölbreytilegar og góðar teygjur teknar. Einnig er lögð áhrersla á góðar og kraftmiklar hugleiðslur í hverjum tíma. Þar munu þátttakendur fókusera á að styrkja sjálfa sig. Hver og einn vinnur eftir sinni getu og að sínu markmiði, jafnt líkamlega sem andlega.

Lögð verður áhersla á bæði líkamlegt og andlegt heilbrigði á sama tíma. Þjálfari, sem er miðill, mun einnig nota sína miðilshæfileika til að meta og sjá hvað hver og einn getur betur til að ná hámarksárangri.


SKRÁNINGARFERLIÐ:

Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:

  • Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
  • Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
  • Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
    ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050