Fara í efni

Hvers vegna lifa konur lengur en menn?

Vissir þú þetta? Ónæmiskerfi hjá konum eldist hægar en hjá karlmönnum.
Konur lifa lengur en karlar
Konur lifa lengur en karlar

Vissir þú þetta? Ónæmiskerfi hjá konum eldist hægar en hjá karlmönnum.

Og hérna er ástæðan fyrir því.

Það er vel þekkt að konur lifa lengur en karlmenn. Í Kanada verða konur að meðaltali 83. ára á meðan karlmenn ná að meðaltali 79 ára aldri.

Það sem kom í ljós þegar þetta var rannsakað var að ónæmiskerfið hjá konum eldist hægar en hjá karlmönnum.

Japanskir vísindamenn rannsökuðu 162 heilbrigða karlmenn og 194 heilbrigðar konur frá 20 til 90 ára. Við rannsókn á blóði hjá konunum kom í ljós að T og B frumur lækkuðu á minni hraða en hjá körlunum.

T og B frumur skipta ónæmiskerfið afar miklu máli, þegar við verðum veik fjölga þær sér og "ráðast" á þá vírusa sem sækja á okkur.

Þessi rannsókn var gefin út í Immunity & Ageing Journal á þessu ári.

Grein frá besthealthmag.ca