Konur – Ég er hætt að væla yfir gráum hárum...
Nú hættum við að væla yfir einu og einu gráu hári og förum alla leið.
#GrannyHair á Instagram
Nú hættum við að væla yfir einu og einu gráu hári og förum alla leið.
Ég tengi bara við ömmu mína þegar ég hugsa um alveg gráhærðar konur.
En heitasta „trendið“ þessa dagana og þá sérstaklega á INSTAGRAM er að lita hárið á sér alveg grátt #GrannyHair
Ég og aðrar konur sem þurfa að fara reglulega til að lita gráu rótina ættum að taka þessu fagnandi eða hvað? Við getum þakkað hugrökkum konum útum allan heim fyrir að taka þessu djörfu skref og fylgja #GrannyHair byltingu þar sem þær lita hár sitt í fallegum silfur gráum tónum og jafnvel fleirum útfærslum eins og fjólubláum tónum með.
Kíkjum á þessar myndir og segðu mér hvað þér finnst um þetta nýja „trend“
Grátt hár er ekki bara fyrir gamlar „gæsir“
#GrannyHair er nýtt „trend“ sem fer eins og stormsveipur um Instagram
Konur á öllum aldri eru að lita hárið sitt dásamlega fallega grátt
Án gríns, hver vissi að grátt hár gæti verið svona „sexy“?
Töff í smáum fléttum
Fullkomin litur með örlitlu af fjólubláum með
Krullurnar rokka í gráu hári
Snúðurinn fullkomin með fjólubláum tón
Það er til grár litur fyrir hvaða húðlit sem er
Þetta tagl er fullkomið í gráu tónum
Dekkri grár tónn – Fallegt
Ótrúlega töff litur
Auðvita er Lady Gaga með puttann á púlsinum
Nú er bara að fagna þessum gráum hárum og leyfa þeim að vaxa vilt og lita restina fallega grátt í stíl við það náttúrulega sem vex.
Tengt efni:
- Töff stuttar klippingar fyrir sumarið
- Svona gerir þú flott hár flottara
- 6 afar góð næringarefni fyrir heilbrigt hár
- Eplaedik í hárið