Fara í efni

Hugurinn og heilbrigði

Kraftur hugans til að stjórna löngun í mat, koma sér að verki í vinnunni eða jafnvel bæta sjónina er sterkur samkvæmt nokkrum nýlegum rannsóknum.
Það er öflugt að plata hugann
Það er öflugt að plata hugann

Kraftur hugans til að stjórna löngun í mat, koma sér að verki í vinnunni eða jafnvel bæta sjónina er sterkur samkvæmt nokkrum nýlegum rannsóknum.

“Ef þú ímyndar þér ákveðna reynslu þá örvast heilinn eins og þú sért virkilega að upplifa það sem þú ert að ímynda þér” en þetta segir Joachim Vosgerau hjá the Center for Behavioral Decision Research í Varnegie Mellon University.

Prufað þú að nota þessa tækni til að beisla þennan kraft hugans.

Að halda aftur af löngunum og leiða athyglina að öðru

Í einni rannsókn gátu þeir sem að tóku þátt í henni dregið úr matarlöngunum með því að ímynda sér regnboga eða lykt af eucalyptus.

Að koma sér í ræktina, sjáðu þig fyrir þér að taka á því

Að taka nokkrar mínútur í að ímynda sér hversu góð æfingin muni verða gerir það mun líklegra að þú komir þér af stað.

Meira sjálfstraust, stattu bein/beinn í baki eins og rokkstjarna

Vísindamenn komust að því að til að auka sjálfstraustið þá er afar gott að ímynda sjálfan sig sem stjörnu, standa bein/beinn í baki og eftir nokkrar mínútur finnst þér þú full/fullur af sjálfstrausti.

Að bæta sjónina, ímyndað þú þér að þú sért með 20/20 sjón

Þeir sem tóku þátt í þessari rannsókn voru látnir ímynda sér að þeir væru flugmenn með fullkomna sjón og í flestum tilvikum þá virkar þetta hjá fólki.

Hver hefði trúað því að það að þykjast gæti verið svona öflugt?

Heimild: health.com