Lífrænt ekki endilega betra fyrir húðina
„Lífrænt vottaðar húðvörur ættu frekar að verða fyrir valinu út frá umhverfissjónarmiði en þær þurfa ekki að vera betri en aðrar húðvörur hvað varðar áhrif þeirra á húðina,“ segir dr. Bolli Bjarnason, húð- og kynsjúkdómalæknir hjá Útlitslækningu ehf., þegar hann er spurður út í hvort lífrænt vottaðar húðvörur séu betri en aðrar húðvörur.
Hann svarar þá neitandi aðspurður hvort að hann hafi orðið var við það að fólk sem noti lífrænar húðvörur sé með betri húð en þeir sem gera það ekki.
„En kosturinn við náttúruleg ósnert efni er visst öryggi þar sem ekki hefur verið hróflað við náttúrunni. Gallinn við efni sem ekki eru náttúruleg er ófyrirsjáanlegar afleiðingar þar sem náttúran gerir væntanlega ekki ráð fyrir að við séum að hrófla við henni,“ útskýrir Bolli.
En Bolli mælir með að fólk skoði vel hvaða innihaldsefni leynast í þeim húðvörum sem það notar. Hjá þeim sem kannast við að fá ofnæmisviðbrögð að einhverju tagi, getur reynst gott að þekkja efnin sem valda óþægindum, eða ofnæmisvakana eins og það er kallað. „Fái fólk ofnæmi fyrir ofnæmisvaka í slíkum vörum getur ofnæmið staðið mjög lengi, jafnvel ævilangt. Það er stundum ekki nóg fyrir viðkomandi að nota ekki húðvörur með ofnæmisvakanum því hægt er að komast í snertingu við hann í gegnum aðrar vörur, t.d. ilmvatn sem aðrir nota. Það getur verið mjög bagalegt þegar fólk nær ekki að forðast snertingu við ofnæmisvakann, t.d. í vinnuumhverfi.“
Innihaldslýsingar geta verið óskýrar
En því miður getur verið hægara sagt en . . . LESA MEIRA
Bolli Bjarnason, Húð -og kynsjúkdómalæknir
Grein af vef utlitslaekning.is