Blómkáls- og brokkolísúpa frá Heilsumömmunni
Uppskerusúpa sumarsins.
Uppskerusúpa sumarsins.
Þessa gerði ég nokkrum sinnum í sumar og heppnaðist alltaf jafnvel. Hún verður auðvitað lang best ef notað er glænýtt íslenskt blómkál og brokkolí.
Með því að sjóða hluta af grænmetinu fyrst og mauka svo verður súpan þykk og matarmikil.
Hráefni:
- 1 blómkálshaus (stór)
- 1 brokkolíhaus (stór)
- 1 laukur
- 2-3 kartöflur
- 1 sellerístöngull
- 2 grænmetisteningar (ég nota gerlausa frá Rapunzel)
- 8 dl vatn
- 2 dl þykk kókosmjólk
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Brytjið niður 1/2 haus af blómkáli (gróflega)
- Skerið niður laukinn (þarf ekki að vera smátt)
- Skerið kartöflurnar í nokkra bita
- Skerið sellerístöngulinn niður í nokkra bita
- Setjið allt í pott ásamt 3-4 dl af vatni (nóg þannig fljóti yfir)
- Sjóðið í u.þ.b. 10 mín eða þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
- Hellið súpunni í blandarann (ef hann þolir sjóðandi vökva) og maukið súpuna. Þið getið líka notað töfrasprota.
- Bætið nú restinni af blómkálinu, brokkolíinu og grænmetiskraftinum út í pottinn ásamt 4-5 dl af vatni.
- Sjóðið í 5-6 mín eða þangað til blómkálið og brokkolíð er orðið mjúkt.
- Bætið kókosmjólkinni saman við og kryddið með salt og pipar.
Uppskrift af vef heilsumamman.com