Soðið rauðkál með eplum og engifer
Ofsalega einfalt og sérlega ljúfengt.
Á dauða mínum átti ég von á frekar en að ég yrði sú týpa sem færi að sjóða niður rauðkál svona rétt fyrir jól en viti menn … það tókst og bara líka rosalega vel!
Innihaldsefni:
- 1 Rauðkálsháls (skorinn í þunnar ræmur)
- 2 græn epli (flysjuð og bituð í teninga)
- Þumall engifer (flysjað og skorið smátt)
- 180 ml 4% edik
- 200 gr púðursykur
- 1 msk saltverks salt
Aðferð:
Allt sett saman í pott og látið malla á lágum til miðlungshita í 1-2 klst.