Fara í efni

Detox fótaböð til að afeitra.

Fótaböð til að afeitra líkamann hafa verið til sölu í a.m.k. 10 ár. Þau eru til frá tugum framleiðenda frá flestum heimshornum og ganga undir mörgum nöfnum eins og t.d. „Aqua Detox“, „Detox Foot SPA“ og „Detox life“.
Þessi fótaböð eru því hrein blekking.
Þessi fótaböð eru því hrein blekking.

Fótaböð til að afeitra líkamann hafa verið til sölu í a.m.k. 10 ár. Þau eru til frá tugum framleiðenda frá flestum heimshornum og ganga undir mörgum nöfnum eins og t.d. „Aqua Detox“, „Detox Foot SPA“ og „Detox life“. Framleiðendur eru með mismunandi lýsingar á því hvernig tækin virka en sumir tala um raftíðnihreinsun, aðrir um útdrátt alls kyns eiturefna og sníkjudýra um 2000 göt sem við eigum að vera með á iljunum. Í fótabaðið er sett vatn og matarsalt, rafskaut tengt á líkamann, oft úlnlið, en síðan er tækið tengt við rafmagn og sett í gang. Og viti menn, eftir nokkrar mínútur byrjar vatnið að litast gult, brúnt, grænleitt og að lokum dökkbrúnt en ofan á vatninu flýtur stundum froða eða skán. Framleiðendur halda því fram að vatnið litist vegna eiturefna sem tækið dregur út úr fótum manns og síðan kemur langur listi yfir alls kyns sjúkdóma og kvilla sem lagist við þessa meðferð. En er eitthvað til í þessu, er einhver innistæða fyrir þessum loforðum og hvað gerist raunverulega í tækinu?


Rannsókn 2004
Árið 2004 birtist grein í breska blaðinu Guardian International eftir Ben Goldacre sem skrifaði um vísindaleg efni. Greinin heitir „Rusty results“ og segir frá ýmsum efnagreiningum sem voru gerðar (þessa grein má finna á netinu á
http://www.badscience.net/2004/09/rusty-results/
Í stuttu máli fundust engin eiturefni, bara ryð (járnoxíð) og sama gerðist ef nagli var settur í baðið í stað fótanna. Ef einhver efast um þetta er hægt að gera eftirfarandi tilraun í eldhúsinu: takið ílát úr gleri eða plasti og setjið í það vatn og svolítið matarsalt; takið tvo nagla (ekki galvaníseraða) eða aðra hluti úr járni, tengið þá við rafhlöðu og setjið í sitt hvorn enda ílátsins; eftir nokkurn tíma litast vatnið eins og lýst var í fótabaðinu og liturinn er ryð vegna þess að rafstraumurinn veldur tæringu á járninu.

Engin innistæða
Lýsing frameiðenda þessara tækja á sér engan vísindalegan grunn og enga stoð í raunveruleikanum. Þau efni sem líkaminn þarf að losa sig við og hægt væri að kalla „eiturefni“ (þvagefni, þvagsýra, kreatinín, lyf, þungmálmar o.fl.) losar líkaminn sig við fyrir tilstilli lifrar og nýrna og engin þessara efna fundust við efnagreiningu á innihaldi fótabaðsins. Þessi efni komast þar að auki ákaflega illa í gegnum húð.
Margir hefðu haldið að rannsóknir og umfjöllun eins og átti sér stað 2004 hefði átt að opna augu fólks og setja svona tæki út í kuldann en því miður virðist þessi „iðnaður“ blómstra og a.m.k. ein gerð þessara tækja er með íslenskan umboðsaðila og er seld hér á landi.

Niðurstaða 
Detox fótaböð eiga sér engan vísindalegan grunn, rannsóknir hafa sýnt að það eina sem safnast í vatnið og gefur því lit er ryð. Engar rannsóknir hafa verið birtar sem sýna þau áhrif sem lofað er af seljendum tækjanna. Þessi fótaböð eru því hrein blekking.

Magnús Jóhannsson læknir og prófessor emeritus
Þessi pistill er eign höfundar og má hvorki afrita hann né nota efni hans án leyfis.
t-póstur: magjoh@hi.is