Er ávaxtakarfa og líkamsræktarstyrktur nóg?
Morgunfundur Embættis landlæknis, VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, og Vinnueftirlits ríkisins um heilsueflandi vinnustaði verður haldinn í Háteigi á Grand Hótel þann 9. maí. kl. 8.15-10.00.
Húsið opnar kl. 8.00 með léttri morgunhressingu.
Fundurinn er öllum opinn, aðgangur er ókeypis en skrá þarf þátttöku á virk.is Opnast í nýjum glugga.
Aðalfyrirlesari fundarins, Karolien Van Den Brekel heimilislæknir og doktor í sálfræði fjallar um jákvæða heilsu og vinnustaði. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir frá Embætti landlæknis ræðir hvernig gera megi betur í heilsueflingu og Jóhann F. Friðriksson frá Vinnueftirlitinu útskýrir mikilvægi fjárfestingar í heilsu starfsmanna.
Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK, stýrir fundinum.
Dagskrá
08.15 Fundur settur
- Heilsuefling - Tækifæri til að gera betur - Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, Embætti landlæknis
- Hvers vegna að fjárfesta í heilsu starfsmanna? - Jóhann F. Friðriksson, lýðheilsufræðingur, Vinnueftirliti ríkisins
- Jákvæð heilsa á vinnustað, Karolien Van Den Brekel MD, Phd
Morgunfundurinn er sá fyrsti í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.