Fara í efni

Er þetta lausnin fyrir menn sem eru að missa hárið ?

Ný könnun sýnir að menn sem eru að missa hárið ættu, án þess að hika við, að raka það allt af strax. Hvers vegna? Jú, lestu áfram og þú skilur hvað ég er að fara með þessari yfirlýsingu.
Gæti þetta verið málið?
Gæti þetta verið málið?

Ný könnun sýnir að menn sem eru að missa hárið ættu, án þess að hika við,  að raka það allt af strax. Hvers vegna? Jú, lestu áfram og þú skilur hvað ég er að fara með þessari yfirlýsingu.

Hérna er ástæðan.

Segðu bróðir þínum, pabba eða maka þetta: Nýleg könnun sem var gefin út í Social Psychological and Personality Science sýndi að menn sem eru í vanda með hárlos geta gert eitt róttækt í því. Raka af sér allt hárið.

Það hefur sýnt að karlmenn sem eru nauðasköllóttir eru oftar taldir hafa meiri völd, vera í forystu og hafa meiri yfirráð en þeir sem eru með allt sitt hár eða eru búnir að missa hluta af því.

Kannað var hvaða áhrif það hefði á aðra, ef að karlmaður rakaði af sér allt hárið. Þátttakendur, bæði karlar og konur fengu þrjár myndir af karlmönnum. Einn með hár, einn með hár sem byrjað var að þynnast og svo einn alveg sköllóttann. 

Allir voru sammála um að karlmenn sem eru nauðasköllóttir væru afar karlmannlegir og sterkari týpur en menn með hár sem var að þynnast og menn sem voru enn með allt sitt  hár.

Sköllóttir karlmenn voru einnig sagðir meira aðlaðandi en karlmaður með hár sem er að þynnast en minna aðlaðandi en karlmaður sem er með allt sitt hár.

Áhugavert, ekki satt ?

Grein fengin af besthealthmag.ca