Ertu með sykursýki?
Fyrstu einkenni sykursýki tegund 2 geta hæglega farið framhjá þeim sem hafa sjúkdóminn. Erlendar tölur sýna að allt að þriðjungur veikra gangi um án þess að gera sér grein fyrir að þeir hafi sjúkdóminn.
Fyrstu einkenni sykursýki tegund 2 geta hæglega farið framhjá þeim sem hafa sjúkdóminn.
Erlendar tölur sýna að allt að þriðjungur veikra gangi um án þess að gera sér grein fyrir að þeir hafi sjúkdóminn.
Fyrstu einkenni eru:
- Þorsti/tíð þvaglát Því getur fylgt hungurstilfinning eða lystarleysi,munnþurrkur og breyting á líkamsþyngd
- Höfuðverkur Einnig þreyta og óskýr sjón
- Sýkingar Útbrot eða kláði í húð,tíðar sveppasýkingar eða þvagfærasýkingar
- Kyndeyfð Sykursýki getur skemmt æðar og taugar m.a. til kynfæra. Það getur orðið erfiðara að fá fullnægingu. Konur finna fyrir þurrki í leggöngum og karlmenn geta fengið ristruflanir.
Kannist þú við þessi einkenni skaltu leita til þíns heimilslæknis og fá mældan blóðsykur.
Ítarlegri upplýsingar um sykursýki má finna hér á Doktor.is