Ertu með vöðvabólgu?
Vöðvabólga í öxlum/herðum er mjög algengt vandamál. Í mörgum tilfellum er það vandamál auðleysanlegt með æfingum og hreyfingum sem vinna á auma svæðinu.
Til er fjöldinn allur af flottum og góðum æfingum sem hafa unnið vel á þessu algenga vandamáli.
Ef þú ert með lélega líkamsstöðu og vinnur mikið við tölvu – þá græðir þú mikið á þessum æfingum
Ég hef ekki tölu á því hvað ég hef haft marga kúnna sem hafa átt við vandamál að stríða í herðum/öxlum. Hér eru nokkrar æfingar sem hafa reynst virkilega vel.
Handganga á vegg (mini band) . . . LESA MEIRA OG SKOÐA ÆFINGAMYNDBÖND.
Á vef FaglegFjarthjalfun.com má finna mikið af góðu efni.
Vilhjálmur Steinarsson Þjálfari
Menntun:
Íþróttafræðingur B.Sc frá Háskólanum í Reykjavík
Námskeið:
- Uppbygging æfingakerfa-Lee Taft
- Ólympískar lyftingar-Lee Taft
- Stafræn þjálfun-Mike Boyle
- Afreksþjálfun íþróttamanna í Serbíu með núverandi styrktarþjálfara CSKA Moscow
- Strength & conditioning clinic í Pesaro á Ítalíu sumarið 2011. Á vegum styrktarþjálfara Toronto Raptors í NBA deildinni, Francesco Cuzzolin.
- Námskeið í mælingum (Súrefnisupptaka og mjólkursýruþröskuldur)
- Elixia TRX group training instructor.
- Running Biomechanics – Greg Lehman
- Running assessment and rehabilitation- Greg Lehman
Villi hefur stundað körfubolta síðan hann man eftir sér og spilað með þremur liðum í úrvalsdeild, Haukum, Keflavík og síðast hjá ÍR.
Villi starfaði sem styrktarþjálfari hjá úrvalsdeildarliði ÍR í körfubolta í tvö ár, áður en hann flutti út til Noregs.
Nú starfar Villi sem styrktarþjálfari fyrir íþróttamenn og hefur einnig yfirumsjón með styrktarþjálfun í framhaldsskóla sem ætlaður er íþróttafólki úr hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig vinnur hann náið með sjúkraþjálfurum á stöð sem heitir Stavanger Idrettsklinikk (www.stavangeridrettsklinikk.no)
Ásamt því að einkaþjálfa, þá fær Villi til sín íþróttafólk úr öllum áttum í nákvæmar greiningar og mælingar (Vo2 max, mjólkursýruþröskulds mælingar, o.fl) þar sem hann hjálpar þeim að bæta frammistöðu og skipuleggja þjálfun.