Finnst þér stundum of tímafrekt að lakka á þér neglurnar ?
Í dag er þetta ekkert mál, ekkert lakk en samt afar flottar neglur, og hvernig, spyrð þú eflaust?
Í dag er þetta ekkert mál, ekkert lakk en samt afar flottar neglur, og hvernig, spyrð þú eflaust? Jú, haltu áfram að lesa.
Ertu að fara í veislu, út að borða eða bara að djamma en gleymdir að lakka á þér neglurnar?
Í dag eru til þær allra flottustu og einföldustu naglafilmur sem ég hef prufað. Tók mig nokkrar mínútur að skella á allar neglurnar og pússa til og það þarf ekki að sitja og blása á lakk til að flýta fyrir að það þorni. Ó Nei!
Og þetta tók mig afar stuttan tíma.
Það er líka svo gaman að hafa fallega skreyttar neglur, t.d sem passa flott við kjólinn eða dressið sem þú ætlar að vera í.
Shine B Iceland var að taka inn alveg rosalega flottar naglafilmur, þær eru svo auðveldar í ásetningu og eins og sjá má í kynningarmyndbandinu hér að neðan þá er þetta bara ekkert mál.
Kíktu einnig á heimasíðuna þeirra til að sjá allt úrvalið.
Í hverjum pakka eru 20 stk filmur svo þú finnur pottþétt þína réttu stærð.
Fallega skreyttar neglur er málið í sumar stelpur.