Fiskur á Fimmtudegi - Pönnufiskur fyrir fjóra

Bragðmikill fiskréttur í rjómasósu.
- Undirbúningur: 10 mín
- Eldun: 20 mín
- Fyrir: 4
Hráefni:
800 g hlýri eða steinbítur
2 msk Filippo Berio ólífuolía
3 msk smjör
salt og pipar
2 stk hvítlauksrif
1/2 sítróna - safinn
150 g Philadelphia rjómaostur
1 dl rjómi
2 msk Oscar fljótandi humarkraftur
100 g kirsuberjatómatar
söxuð steinselja
Leiðbeiningar:
1. Hitið pönnu vel með ólífuolíu
2. Skerið hlýrann í bita og þerrið
3. Steikið fiskinn upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar
4. Bætið pressuðum hvítlauk á pönnuna og kreistið sítrónusafa yfir
5. Setjið rjómaostinnn á pönnuna ásamt humarkrafti, rjóma og kirsuberjatómötum og látið malla í 2 mínútur
Uppskrift HÉR.