Fara í efni

Fjarveran - Guðni með hugleiðingu á miðvikudegi

Miðvikudagshugleiðing.
Miðvikudags hugleiðing
Miðvikudags hugleiðing

Orkan segir sannleikann

Hvert augnablik býður þér upp á tækifæri og í þessu tækifæri felast tvær leiðir – þú getur farið inn í fjarveru og hafnað þessu tækifæri á einu augabragði með einni af fjölmörgum leiðum til höfnunar eða þú getur verið vitni og fylgst með í fullum og ljós- lifandi kærleika; verið vitni sem þakkar kurteislega fyrir sig.

Það er ekki hægt að gera hvort tveggja. Eitt útilokar annað, rétt eins og ljós útilokar myrkur.
Innsæið gerir manni kleift að vita nákvæmlega og samstundis hvora leiðina við höfum valið.
Hvernig?

Það verður svo augljóslega minna ljós, um leið og stigið er inn í fjarveruna, viðnámið, höfnunina.