Fara í efni

Fleiri eldri konur stunda lotudrykkju

Fleiri eldri konur stunda lotudrykkju

Eldri konum í Bandaríkjunum sem drekka of mikið fer fjölgandi samkvæmt nýrri rannsókn.

Það sem veldur mestum áhyggjum er að fjöldi kvenna 60 ára og eldri sem stunda lotudrykkju hefur farið vaxandi hin síðari ár. Bandaríska lýðheilsustofnunin skilgreinir lotudrykkja karlmanna sem fimm áfenga drykki sem neytt er á innan við tveimur tímum, lotudrykkja kvenna er skilgreind sem  fjórir áfengir drykkir á innan við tveimur klukkustundum.

Lýðheilsusérfræðingurinn Rosalind Breslow  segir að lotudrykkja geti verið mjög hættuleg heilsu kvenna enda þoli þær áfengi ver en karlar. „Alkahólmagn í blóði kvenna sem drekka jafn mikið og karlar verður hærra og hefur verri áhrif á heilsu þeirra,“ segir Breslow.

Hún stýrði rannsókn þar sem drykkjumynstur karla og kvenna 60 ára og eldri var skoðað. Rannsóknin hófst árið 1997 og henni lauk 2014.

Í ljós kom að lotudrykkja kvenna jókst að jafnaði um fjögur prósent á ári en drykkja karlanna stóð nokkurn veginn í stað. Þrátt fyrir það . . . LESA MEIRA