Fara í efni

Föstudagur og það er kominn miður maí, hérna eru falleg orð frá honum Guðna lífsráðgjafa

Föstudagur og hérna er hugleiðingin~
Föstudagur og hérna er hugleiðingin~

Þú ert kraftaverk, allt sem þú veitir athygli vex og dafnar – bæði það sem þú vilt að vaxi og dafni og það sem þú hefur engan áhuga á að geri það.

Þú ert skapari, hvort sem þú skapar í vitund eða óafvitandi, og því er mikilvægt að vanda sig og velja og veita athygli sinni markvisst.

Þegar þú veitir athygli þá veitir þú ljósi og birtu, kærleik sem er ást, og þegar við erum í fullri vitund, tengd tilgangi okkar og ástríðum, þá er rafmagnið á þessu ljósi í hámarki og máttur þinn sem skapara á fullum straumi.