Fréttatilkynning – Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra 2016
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í boccia, lyftingum og sundi, verður haldið í Reykjanesbæ dagana 12. – 13.mars.
Umsjónaraðili Íslandsmótsins í samvinnu við íþróttanefndir ÍF er íþróttafélagið NES og Massi, lyftingadeild UMFN.
Íslandsmót í borðtennis fer einnig fram í samvinnu við NES en það verður í apríl í Grindavík.
Sundkeppni fer fram í Vatnaveröld.
Keppni hefst á laugardag kl. 14.00 og sunnudag kl. 10.00, áætlað er að keppni standi í tæpa 4 tíma báða dagana.
Bocciakeppni fer fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
Mótssetning er á laugardag kl. 10.30 .
Keppni hefst á laugardag kl. 11.00 og sunnudag hefjast úrslit kl. 11.00. Áætlað að keppni ljúki 13.30.
Lyftingar fara fram í Ljónagryfjunni í lyftingaraðstöðu Massa. Keppni hefst kl. 13.00 á sunnudag og áætlað að keppni ljúki 15.30.
Verðlaunaafhending er í lok keppni í boccia og lyftingum en í sundi fer fram verðlaunaafhending að loknum hverjum þremur greinum.