Fróðleiksmoli dagsins er í boði Ediks - ertu með skötu á þorláksmessu?
Nú fer Þorláksmessa að bresta á með tilheyrandi skötulykt út úr næstum hverju húsi.
Það er ekki öllum sem líkar sterk lykt skötunnar!
Nú fer Þorláksmessa að bresta á með tilheyrandi skötulykt úr næstum hverju húsi.
Ég er alls ekki hrifin af þessari lykt svo ég tali nú ekki um að "menga" heilan stigagang í fjölbýli á meðan nágranninn er að elda skötuna sína.
Hérna er ég með alveg snilldar ráð til að losna við þessa lykt á ódýran og afar einfaldan hátt.
Þið sem eldið skötu, takið eftir!
Taktu Borðedik, oft kallað glært edik en það er lífrænt þ.e þynnt ediksýra. Settu borðedik í skál og látið standa á eða nálægt ofni. Þú getur útbúið fleiri en eina skál og dreyft um íbúðina eða húsið hjá þér.
Þetta dregur í sig ólykt.
Einnig ef það er vond lykt af skurðarbrettum hjá ykkur þá má skrúbba þau upp úr ediki og muna að skola afar vel á eftir.
Fróðleikur í boði Heilsutorg.is