Fyrirlestur um matarfíkn
Fyrirlestur um matarfíkn í Háskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 20. janúar kl: 20.
Vera Tarman MD
Kanadíski fíknilæknirinn dr. Vera Tarman flytur fyrirlestur um matarfíkn á vegum Matarheilla Þriðjudaginn 20. janúar 2015 Klukkan 20:00.
Er fyrirlesturinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu V-102.
Vera Tarman MD er menntaður heimilislæknir sem hefur sérhæft sig í fíknilækningum. Hún er nú yfirlæknir á stærstu meðferðarstöð fyrir alkóhólista og fíkniefnaneytendur í Toronto, Kanada.
Vera hefur verið leiðandi í umræðu um matarfíkn sem þátt í offituvandanum; orsakir, afleiðingar og meðferðaleiðir. Hún hefur nýverið gefið út bókina Food Junkies; The truth about foodaddiction ásamt Philip Werdel. Vera heldur úti vefsiðunni: Addictionsunplugged.com, hún er eftirsóttur fyrirlesari og málssvari fyrir þennan málaflokk.