Fara í efni

Geðrækt

Starfsemi Embættis landlæknis á sviði geðræktar skiptist í fræðslu, ráðgjöf, margskonar verkefni og rannsóknir.
Geðrækt

Starfsemi Embættis landlæknis á sviði geðræktar skiptist í fræðslu, ráðgjöf, margskonar verkefni og rannsóknir.

Markmið starfsins er að stuðla að vaxandi geðheilbrigði og vellíðan meðal íslensku þjóðarinnar. Áhersla er lögð á að efla þekkingu almennings og stjórnvalda á geðheilbrigði og þeim þáttum sem stuðla að góðri geðheilsu. Ennfremur er lögð áhersla á að efla færniþjálfun á sviði samskipta og geðheilbrigðis í skólum og á vinnustöðum. Mikilvægt er að skapa umhverfi sem ýtir undir jákvæða sjálfsmynd, góð samskipti og vellíðan í leik og starfi. Það er engin heilsa án geðheilsu.

Embættið vinnur að geðræktarverkefnum fyrir alla aldurshópa sem nýta má í skólum, á heilbrigðisstofnunum, innan fyrirtækja og fyrir almenning. Á vegum Embættis landlæknis eru einnig unnar rannsóknir á geðheilsu og líðan barna og fullorðinna. Embættið er í samstarfi við innlenda og erlenda rannsakendur, háskóla og heilbrigðisstofnanir um rannsóknir, öflun og miðlun þekkingar á sviði geðheilbrigðis. 

Embættið er faglegur ráðgjafi stjórnvalda um geðrækt.

Af vef landlaeknir.is