GEGN SJÁLFSVÍGUM UNGRA KARLA
Geðhjálp og Rauði krossinn efna í sumar í samstarfi við 12 manna hlaupahóp til átaks- og forvarnarverkefnis gegn sjálfsvígum ungra karla á Íslandi undir yfirskriftinni Útme‘ða.
Með slagorðinu eru ungir karlmenn hvattir til að setja tilfinningar sínar í orð til að stuðla að því að hafna ekki í tilfinningalegu öngstræti með ófyrirséðum afleiðingum. Sjálfsvíg hafa verið algengasta dánarorsök íslenskra karlmanna á aldrinum 18 til 25 ára á allra síðustu árum.
Framlag hlaupahópsins til átaksins verður að hlaupa hringinn í kringum landið eftir þjóðvegi eitt . Markmið hópsins er að hlaupa vegalengdina á styttri tíma en nokkurn tímann hefur áður verið gert eða á innan við fimm sólarhringum. Hlaupahópurinn skiptir sér upp í fimm pör í hlaupinu, einn karl og eina konu og hleypur hver hlaupari í 30 mínútur í senn í því skyni að halda hröðu ,,tempói” allan hringinn.
Hlaupið er mjög krefjandi því hver hlaupari þarf að meðaltali að hlaupa á 12 km hraða tæplega 30 km leið á hæðóttu undirlendi á hverjum einasta degi. Á milli hlaupalota hvílast og nærast hlaupararnir í lítilli rútu.
Hlaupið hefst þann 30. júní og lýkur með grillveislu í Reykjavík þann 5. júlí.
Með hlaupinu vill hópurinn vekja athygli á hárri sjálfsvígstíðni ungra karla og safna fé til að kosta forvarnarmyndband og herferð til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma aldurshópi. Sjálfsvíg hafa tekið við af bílslysum sem algengasta dánarorsök ungra íslenskra karla á allra síðustu árum.
Almenningur verður hvattur til þess að hlaupa með hlaupurum og vekja athygli á málefninu með einum eða öðrum hætti í viðkomandi byggðarlagi. Fólk verður hvatt til að heita fé á hlauparana og styðja þannig verkefnið með beinum hætti. Stefnt er að því að herferðinni verði ýtt úr vör á Alþjóðlegum forvarnardegi gegn sjálfsvígum þann 10. september næstkomandi.
Hlaupaleiðin í kringum landið
Með þessu bréfi óskum við hlaupararnir, Rauði Krossinn og Geðhjálp liðsinnis þíns fyrirtækis við að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Ótímabær dauði karlmanna í blóma lífsins er blettur á íslensku samfélagi.
Fyrir hönd Geðhjálpar Fyrir hönd hlaupahóps Fyrir hönd Rauða krossins
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Linda Svanbergsdóttir Hermann Ottósson