Fara í efni

Grænmeti: Hvað er svona hollt við það?

Já hvað er svona hollt við grænmetið? Góð spurning, og hérna eru svörin sem allir ættu að leggja á minnið. Muna svo að kaupa meira grænmeti og borða það líka!
Grænmetið er allra meina bót
Grænmetið er allra meina bót

Já, hvað er svona hollt við grænmetið? Góð spurning, og hérna eru svörin sem allir ættu að leggja á minnið. Muna svo að kaupa meira grænmeti og borða það líka!

Spergilkál.

Það er frábær uppspretta af andoxunarefninu lipoic sýru. einnig ríkt af fleiri andoxunarefnum eins og annað dökkt grænmeti. Þú finnur líka C og E-vítamín í Spergilkáli (Broccoli).

Gulrætur.

Ein besta uppspretta af beta-karótíni sem er mikilvægt fyrir sjónina okkar. Gulrætur eru einnig ríkar af andoxunarefnum.

Tómatar.

Þeir eru ríkir af vítamínum og þá sérstaklega A og C og einnig ríkir af kalki og trefjum. Tómatar innihalda líka mikið magn af andoxunarefninu licopene. Neysla á því minnkar líkurnar á krabbameini, hjartasjúkdómum og viðheldur beinþéttni líkamans samkvæmt nýjustu rannsóknum. Þeir innihalda líka lipoic sýru, eins og brokkólí sem er góð fyrir heilann.

Sellerí.

Það inniheldur 3-n butyl phtalide sem er æðaútvíkkandi efni og er það einnig þekkt fyrir að lækka stresshormónið catacholamine. Það inniheldur líka apigenin sem getur lækkað háan blóðþrýsting. Sellerí hefur einnig bólgueyðandi eiginleika og er vatnslosandi. Kalk og C-vítamín má líka finna í Sellerí. Það er kólestról frítt og lágt í natríum. Sellerí inniheldur líka A-vítamín og prótein.

Agúrkan.

Þær eru taldar vera upprunalega frá Indlandi og eru til heimildir um notkun þeirra fyrir 3000 árum. Þær innihalda A og C-vítamín og eru einnig ríkar af kalki og kalíum. Afar hollar og hitaeiningasnauðar. 

Epli.

Þau innihalda andoxunarefnin catechins og quercetin. Neysla þeirra minnkar líkur á hjartasjúkdómum og krabbameini. Þessi efni hvetja einnig til collagen myndunar sem fær húð okkar til að líta betur út. Epli eru einnig rík af pectin sem hjálpar til við að minnka kólestról.

Lárpera (Avocado).

Hún inniheldur amínósýruna glutathione sem hjálpar okkur í baráttunni við liðagigt (RA) og við Parkisons sjúkdóminn. Hún ver okkur einnig gegn hjartasjúkdómum og krabbameinum. Lárperan er einnig rík af E, K og B-vítamínum. Hún inniheldur mikið magn af einómettuðum fitusýrum (hollri fitu). Ein lárpera inniheldur 25% af ráðlögðum dagskammti af mettuðum fitusýrum. Þrátt fyrir að bananinn sé þekktur fyrir að innihalda mikið magn af kalíum þá hefur lárperan um 60% meira magn af því en hann.

Bananar.

Þeir innihalda mikið magn af kalíum sem dregur úr kalsíum tapi í beinum. Það getur líka hjálpað til við að lækka blóðþrýsting og minnkar einnig bjúgmyndun í líkamanum.

Það er margt fróðlegt að finna á síðu islenskt.is og kíktu á það HÉR