Grænn hlaðinn kókós og sítrónu með grænkáli – Super drykkur
Þessi græni er algjör snilld.
Þessi græni er algjör snilld.
Grænkál, kókós og appelsína er blanda sem vit er í. Stútfull af vítamínum og steinefnum sem líkaminn elskar.
Uppskrift er fyrir einn drykk.
Hráefni:
Nota kókósmjólk eftir smekk – fer eftir hversu þykkan drykk þú vilt
2 appelsínur – án hýðis og steina
1 banani
3 bollar af grænkáli – saxað
½ lime – án hýðis
Leiðbeiningar:
Byrja alltaf á að setja vökvann í blandarann
Svo mjúka ávexti
Og í lokin allt þetta græna
Skella á fullan hraða þar til drykkur er mjúkur
Njótið vel!