Grænn með kókós og grænkáli – nammi namm
Þessi drykkur kemur alveg í stað morgunmatarins og þá sérstaklega ef þú ert að losa þig við kílóin.
Þessi drykkur kemur alveg í stað morgunmatarins og þá sérstaklega ef þú ert að losa þig við kílóin.
Appelsínur og grænkál eru hlaðin trefjum sem eru líkamanum afar nauðsynlegar.
Uppskrift er fyrir einn.
Má geyma í 24 tíma í ísskáp.
Hráefni:
1 banani – án hýðis
1 appelsína – án hýðis og steina
1 meðalstór gulrót
3 bollar af grænkáli, stilkar fjarlægðir
Ósæt kókósmjólk eftir smekk
Leiðbeiningar:
Byrjið ávallt á að setja vökvann í blandarann.
Því næst mjúka ávexti.
Og í lokin allt sem er grænt.
Skellið á mesta hraða í 30 sekúndur eða þar til drykkur er mjúkur.
Njótið vel!