Gunnlaugur Júlíusson ofurhlaupari í viðtali
Fullt nafn: Gunnlaugur Júlíusson
Aldur: 60 ára
Starf: Sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Maki: Sigrún Sveinsdóttir Lyfjafræðingur
Börn: Sveinn Friðrik, Jóhann Reynir og María Rún
Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „járnkarl“?: Girðingavinna
Nefndu þrennt sem þú átt alltaf til í ísskápnum ?: Lýsi, skyr og grænmeti
Hvaða töfralausn trúir þú á?: Ég trúi ekki á töfralausnir
Ef þú værir staddur/stödd á eyðieyju hvað myndir þú ekki vilja vera án?: Matar og drykkjar
Hver er þinn uppáhaldsmatur?: Plokkfiskur með rúgbrauði
Hvort borðar þú brúnan eða hvítan sykur ?: Ég borða ekki sykur
Hvað æfir þú oft í viku ?: Að jafnaði sex sinnum en það fer upp í 15 sinnum
Ef þú ætlar að „tríta“ þig sérlega vel hvað gerir þú ?: Fæ mér kaldan bjór
Hvað er erfið æfing í þínum huga ?: Að hlaupa upp að Esju, ganga upp að Steini og hlaupa svo heim aftur (í Rauðagerðið)
Hvað segir þú við sjálfan/sjálfa þig þegar þú þarft að takast á við stórt/erfitt verkefni ?: Einbeita sér að því að ná að upplifa ánægjuna þegar verkefninu er lokið
Þegar þú liggur andvaka, hvað hugsar þú um ?: Ég er aldrei andvaka
Hvernig líta „kósífötin“ þín út ?: Gallabuxur og íþróttabolur
Þegar þú færð þér skyndibita hvað færð þú þér oftast ?: Döðlur og hnetur