Gyllt te fyrst á morgnana
Skelltu í þig bolla af þessu snilldar holla tei fyrst á morgnana. Það hefur afar góð áhrif á líkamann, ver þig gegn krabbameini og byggir upp heilann.
Skelltu í þig bolla af þessu snilldar holla tei fyrst á morgnana.
Það hefur afar góð áhrif á líkamann, ver þig gegn krabbameini og byggir upp heilann.
Hráefni:
Skerið bita af turmeric – hafið hann um 5 cm
Hunang
Vatn
Leiðbeiningar:
Setjið turmeric í 3-4 bolla af vatni
Látið suðuna koma upp
Lækkið hitann og leyfið þessu að sjóða í 30 mínútur
Setjið lok á pottinn og látið standa yfir nótt
Því næst skal sigta teið.
Svo þegar þú ætlar að drekka bolla þá hitar þú það bara upp og mælt er með hrá hunangi saman við.
Þetta te er einnig afar gott sem íste.
Ef þú hefur hugsað þér að drekka það kalt þá er mjög gott að setja hunangið saman við á meðan það er heitt og láta það kólna þannig yfir nótt og skella svo klökum saman við teið morguninn eftir.
1 bolli að morgni á fastandi maga gerir víst kraftaverk.
Njótið vel!