Hættu nú alveg! Málþing í Hörpu 14. mars 2017
Þriðjudaginn 14. mars næstkomandi stendur Embætti landlæknis ásamt Læknafélagi Íslands og Krabbameinsfélaginu fyrir málþingi um tóbaksvarnir sem ber yfirskriftina „Hættu nú alveg!"
Hættu nú alveg! Málþing í Hörpu 14. mars 2017
Þriðjudaginn 14. mars næstkomandi stendur Embætti landlæknis ásamt Læknafélagi Íslands og Krabbameinsfélaginu fyrir málþingi um tóbaksvarnir sem ber yfirskriftina „Hættu nú alveg!"
Málþingið verður haldið í Kaldalóni, Hörpu klukkan 13:00–16:00.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra mun setja þingið. Á dagskránni eru þrír fyrirlesarar:
- Ángel López, prófessor í hagfræði við Tækniháskólann í Cartagena á Spáni, fjallar um hvernig við getum notað skattlagningu til að bæta heilsu þjóðarinnar.
- Charlotte Pisinger, vísindamaður við Forskningscenter for Forebyggelse og Sundhed í Kaupmannahöfn, flytur erindi undir undir yfirskriftinni „Rafsígarettur – undur eða ógn?".
- Jónas Atli Gunnarsson hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kynnir fyrstu niðurstöður úr könnun stofnunarinnar á kostnaði þjóðfélagsins af reykingum.
Fundarstjóri verður Guðmundur Þorgeirsson, prófessor og sérfræðingur í hjartalækningum, og stýrir hann einnig pallborðsumræðum að framsöguerindum loknum. Birgir Jakobsson landlæknir tekur þátt í pallborðinu auk fyrirlesaranna.
Þingið fer að mestu fram á ensku.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Tilkynna þarf þátttöku með því að senda póst á krabb@krabb.is í síðasta lagi 13. mars 2017.
Sjá Dagskrá (PDF)
Viðar Jensson
verkefnisstjóri tóbaksvarna
Af vef landlaeknir.is