Fara í efni

Hættum að dæma - hugleiðing dagsins

Hættum að dæma - hugleiðing dagsins

Sönn ást er tær vitund, hrein athygli og hrein hlustun.

Það felur í sér að láta af efasemdum og gagnrýni – að hætta að dæma og hafa endalausar skoðanir á hinu og þessu. Ef þú hefur áhuga á því að upplifa hreina birtingu fólksins í lífi þínu er kominn tími til að láta af dómarahlutverkinu.

Án dómarans eru allar manneskjur fallegar – líka þú – á því augnabliki sem þú veitir þeim hreina athygli og tæra hlustun. Þeim er treyst til að vera eins og þær eru, þær eru dáðar fyrir allt sem þær eru – og þá opna þær sig til fulls.

Rétt eins og blóm sem opnast þegar það lifir í velsæld og jafnvægi. Eins og blóm sem hefur heilnæma næringu, mátulegt rými, skýran tilgang og ljómandi sól yfir allri sinni tilveru.