HAMINGJA Á VINNUSTÖÐUM ER ALVÖRUMÁL!
VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlitið standa fyrir morgunfundi á Grand Hótel 21. febrúar um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum.
Aðalfyrirlesari á morgunfundinum er Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum, en Vanessa er hér á landi að kenna í Jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Auk Vanessu þá ávarpar Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifar rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnir Velvirk verkefnið.
Dagskrá
Ávarp
Alma D. Möller, landlæknir
The serious business of happiness at work
Vanessa King, Action for Happiness
Hamingja vinnandi fólks á Íslandi
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis
Er brjálað að gera?
Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK
Fundarstjóri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands
Morgunfundurinn verður haldinn á Grand Hótel 21. febrúar kl. 8.30 -10.00.
Aðgangur er ókeypis en skrá skal þátttöku á virk.is.