Heilhveiti taco pizza með sætum kartöflum
Frábæra pizza hér á ferð.
Frábæra pizza hér á ferð.
2x stórar pizzur.
850g KORNAX heilhveiti(grænn poki)
1 tsk maldon salt
1 bréf þurrger
5 dl volgt vatn
2 dl matarolía t.d. Ísíó er mjög góð
Leysið ger upp í vatni 37°C
Blandið hráefnum og olíu saman við.
Hnoðað og látið hefast.
Gott á pizzuna:
Taco sósa
Ostur
Sveppir
Sætar kartöflur
Papríka
Rjómaostur
Bacon
Taco krydd
Rifinn ostur yfir alla pizzuna
Bakað við 220°C fyrir miðju ca.15 mín.
Og hún er einnig frábær á grillið.