Heilkornabrauð
Heilkornabrauð
Sumir þola ekki sesamfræ og er þá gott að skipta þeim út fyrir t.d. graskersfræ eða sólblómafræ. Bæði sesam- og birkifræ eru alveg einstaklega kalkrík og því frábært að bæta þeim út í brauð, grauta og boozt við hvert tækifæri, sérstaklega fyrir þau börn sem eru með mjólkurofnæmi eða óþol.
225 g heilhveiti
115 g grófmalað spelt (eða eingöngu (340 g) grófmalað spelt fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir hveiti)
55 g tröllahafrar/hafraflögur grófar
55 g sesamfræ
55 g sólblómafræ
30 g birkifræ
½ tsk sjávarsalt eða fínmalað Himalayan salt
2 msk ólífuolía
1,5 msk vínsteinslyftiduft eða 1 msk þurrger (fyrir þá sem eru ekki viðkvæmir fyrir geri)
260 ml heitt vatn
1 msk hunang eða byggsíróp/malt extract ef notað er ger (þá má sleppa hunanginu)
1 msk sítrónusafi
Aðferð:
Setjið allt mjölið, fræin og saltið saman í skál.
Bætið við malt extrakt/byggsírópinu, ólífuolíunni og þurrgerinu sem bleytt hefur verið upp í 280 ml af volgu vatni í um 10 mínútur (eða vínsteinslyftidufti fyrir þá sem þola ekki ger), hrærið öllu saman með sleif. Ef gerið er ekki notað er hægt að líkja eftir gerbragðinu með því að setja 2 tsk af sítrónusafa saman við deigið.
Bakið brauðið við 180-200°C í 30 mínútur.
Aðferð: 1 msk ger = 1 ½ msk vínsteinslyftiduft + 1 - 2 tsk sítrónusafi.
Höfundur Stefanía Sigurðardóttir