Fara í efni

Heilsueflandi vinnustaður – námskeið 14.–15. janúar 2016

Dagana 14.–15. janúar 2016 verður haldið námskeið á Grand hóteli í Reykjavík fyrir mannauðsstjóra, sérfræðinga, stjórnendur og leiðtoga á íslenskum vinnustöðum. Námskeiðið ber yfirskriftina: Heilsueflandi vinnustaður er skemmtilegur – hámarksárangur með réttum aðferðum.
Heilsueflandi vinnustaður – námskeið 14.–15. janúar 2016

Dagana 14.–15. janúar 2016 verður haldið námskeið á Grand hóteli í Reykjavík fyrir mannauðsstjóra, sérfræðinga, stjórnendur og leiðtoga á íslenskum vinnustöðum.

Námskeiðið ber yfirskriftina: Heilsueflandi vinnustaður er skemmtilegur – hámarksárangur með réttum aðferðum.

 

Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu og færni þeirra sem vilja innleiða árangursríka og skemmtilega heilsueflingu á vinnustað sínum.

Á námskeiðinu verður farið yfir skipulagningu, innleiðingu og eftirfylgni heilsueflingar sem byggir á faglegum og sannreyndum aðferðum.

Þátttakendur munu öðlast skilning á hugmyndafræði árangursríkrar heilsueflingar og vægi þeirra þátta sem henni eru lagðir til grundvallar.

Námskeiðið er samstarfsverkefni á vegum Embættis landlæknis, Vinnueftirlitsins og Nexis.

Innifalið í námskeiðinu er fræðsla og fyrirlestrar í tvo daga, hollur morgunverður, hádegisverður og góð millimálsnæring, verkefnavísar og gögn auk ráðlegginga um mataræði.

Kynning verður haldin á heilsueflandi leik- og grunnskóla og hláturjóga ásamt fleiru.

Fyrirlesarar:

  • Jóhann Friðrik Friðirksson, heilbrigðis-og lýðheilsufræðingur hjá Nexis
  • Ásta Snorradóttir, fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu
  • Jenný Ingudóttir, lýðheilsufræðingur hjá Embætti landlæknis
  • Sigríður Lára Guðmundsdóttir, faraldsfræðingur og lektor við Háskóla Íslands
  • Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingur hjá Embætti landlæknis
  • Sunneva Jörundsdóttir, lýðheilsufræðingur og hláturjógaleiðbeinandi
  • Þorsteinn Guðmundsson, leikari og grínisti, sem býður upp á vinnustaða-vítamín.

Skráning: www.nexis.is. Verð: 49.000 kr.
Lesa nánar: Auglýsing um námskeiðið (PDF) 

Allar nánari nánari upplýsingar veitir
Jóhann Friðrik Friðriksson
nexis@nexis.is. Sími: 858-5708.

Jenný Ingudóttir
verkefnisstjóri 

Af vef landlaeknir.is