Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni
Dagana 10.–16. september 2014 fer fram hjólareiðakeppnin Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Keppnin fer nú fram í annað sinn meðal framhaldsskólanema eingöngu og eru jafnt starfsfólk og nemendur framhaldsskólanna hvattir til þess að nýta sér virkan ferðamáta frá 10.–16. september.
Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embættis landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands Íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið af frumkvæði Hjólafærni á Íslandi og tók hann til starfa síðsumars 2012.
Opnað hefur verið fyrir skráningu HÉR.
Til þess að auðvelda nemendum skráningu í skólanum eru einfaldar skráningarleiðbeiningar í meðfylgjandi viðhengi.
Skoða veggspjaldið Framhaldsskólakeppni 10.-16. september
Héðinn Svarfdal Björnsson
verkefnisstjóri