Hressandi morgundrykkur með apríkósum og mangó
Sítrónusafinn gefur þessum drykk smá “kikk” svona fyrst á morgnana.
Sítrónusafinn gefur þessum drykk smá “kikk” svona fyrst á morgnana.
Uppskrift er fyrir tvo.
Hráefni:
6 apríkósur – steinalausar og skornar smátt
2 þroskuð mangó – án hýðis og skorin í bita
1 bolli af hreinum jógúrt
4 tsk af sítrónusafa
¼ tsk af vanilla extract
8 ísmolar
Og sítrónubörkur til skreytingar
Leiðbeiningar:
- Setjið apríkósur, mangó, jógúrt, sítrónusafa og vanilluna í blandarann. Látið vinnast saman í um 8 sekúndur. Bæti nú við ísmolum. Látið blandast í um 10 sekúndur eða lengur.
- Hellið í há glös, skreytið með sítrónuberki ef smekkur er fyrir því og berið fram strax.
Njótið vel!