Fara í efni

Hvað hefur fæðst úr myrkri? Hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á mánudegin.
Ljósmyndari: Eran Yerushalmi
Ljósmyndari: Eran Yerushalmi

Hvað hefur fæðst úr myrkri?

Ljósið og kærleikurinn mynda uppsprettu lífsins á þessari jörð. Þetta er ekki flókið að sanna:
Sjáðu fyrir þér tvo klefa.

Annar er upplýstur, hinn er myrkur. Sjáðu fyrir þér dyr á milli klefanna. Þegar þú opnar dyrnar mun ljósið flæða inn í dimma klefann og lýsa hann upp. Myrkrið flæðir ekki – það víkur fyrir ljósinu.

Myrkrið flæðir ekki – það getur aðeins vikið. Myrkrið skapar ekki – það getur aðeins breitt yfir.